Psalms 46

1Til söngstjórans. Eftir Kóraíta. Fyrir kvenraddir. Ljóð. 2Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. 3Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins. 4Látum vötnin gnýja og freyða, látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hafsins. [Sela] 5Elfar-kvíslir gleðja Guðs borg, heilagan bústað Hins hæsta. 6Guð býr í henni, eigi mun hún bifast, Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi. 7Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu, raust hans þrumaði, jörðin nötraði. 8Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela] 9Komið, skoðið dáðir Drottins, hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu. 10Hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar, brýtur bogann, slær af oddinn, brennir skjöldu í eldi. 11,,Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð, hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu.`` [ (Psalms 46:12) Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela] ]
Copyright information for Icelandic